
Taktu þátt
Thunderbird er opið verkefni, sem þýðir að allir geta lagt fram hugmyndir, hönnun, kóða og tíma við að hjálpa öðrum notendum.
Vertu með okkurFyrir þig. Auðvelt er að uppfæra í Thunderbird.
Eins-smells nafnaskrá er fljótleg og einföld aðferð til að bæta við fólki í nafnaskrána. Bættu fólki við einfaldlega með því að smella á stjörnu-táknmyndina í póstinum. Ef þú tvísmellir geturðu bætt við fleiri upplýsingum eins og mynd, afmælisdegi, ásamt öðrum tengiliðaupplýsingum.
Viðhengisáminningin leitar að orðinu 'viðhengi' (og öðrum orðum eins og skráartegundum) í meginmáli skilaboðanna og minnir þig á að bæta við viðhengi áður en þú sendir.
Ef þú dýrkar flipana í Firefox, þá áttu eftir að elska póstflipana. Póstflipar gera þér kleift að hlaða inn pósti í mismunandi flipa þannig að auðveldara sé að skipta á milli þeirra. Til dæmis ertu að svara pósti og þarft að skoða eldri tölvupóst. Póstflipar gera þér kleift að vera með marga tölvupósta opna í einu svo auðvelt sé að fylgjast með.
Þegar þú hættir í Thunderbird, munu allir flipar verða vistaðir og endurheimtir aftur þegar þú opnar Thunderbird í næsta skipti. Einnig er ný flipavalmynd á flipaslánni sem hjálpar þér að skipta á milli flipa.
Nýja flýtisíusláin gerir þér kleift að sía póstinn á fljótlegri hátt. Sláðu inn einhver orð í innsláttarsvæði flýtisíunar og niðurstöðurnar birtast samstundis. Þú getur einnig síað póstinn eftir nýjum pósti, merkjum, og fólki í nafnaskrá. Þú getur einnig "fest" eða vistað síu og notað hana á margar möppur.
Leitarviðmótið í Thunderbird inniheldur síur og tímalínu til að hjálpa þér að finna póstinn sem þú ert að leita að. Thunderbird býr einnig til atriðaskrá af öllum pósti og samtölum svo að leitin verði hraðvirkari. Leitarniðurstöður eru birtar í flipa þannig að auðveldlega er hægt að skipta á milli leitarniðurstöðu og annarra póstflipa.
Ef þú heldur að þú þurfir kannski að lesa einhvern tölvupóst í framtíðinni en vilt samt ekki hafa hann í innhólfinu en ert ekki tilbúinn til þess að eyða honum, geturðu geymt hann í safninu. Safnið hjálpar þér að hafa stjórn á innhólfinu og geyma póstinn í geymslumöppu.
Þú getur nú flýtt fyrir flutningi stórra skjala með því að senda þau inn á netgeymsluþjónustu og deila tenglinum í stað þess að senda skrána beint sem viðhengi skilaboða. Bættu hraðann við að senda tölvupóst og forðastu að skilaboðum sé hafnað ef póstþjónn viðtakandans bannar stórar skrár. Sem aukabónus spararðu líka pláss í Sent-möppunni þinni og pósthólfi viðtakandans.
Þemu gera þér kleift að breyta útliti Thunderbird á augabragði. Ertu að vinna í því að tæma pósthólfið á kvöldin? Kveiktu á dökku þema til að gera vinnu í tölvupóstinum minna krefjandi fyrir augun. Thunderbird kemur með bæði ljósum og dökkum þemum og fleiri er fáanleg sem viðbætur.
Snjallmöppur hjálpa þér að halda utan um marga póstreikninga með því að sameina sérstakar möppur eins og Innhólf, Sent, eða Safnmöppu. Í staðinn fyrir að þurfa að fara í innhólf hvers reiknings fyrir sig geturðu séð allann innkominn póst í einni innhólfsmöppu.
Leitaðu að og settu inn viðbætur beint í Thunderbird. Þú þarft ekki lengur að heimsækja heimasíðuna fyrir viðbætur, í staðinn ræsir þú bara viðbótargluggann. Ertu ekki viss um hvaða viðbót er sú rétta fyrir þig? Einkunnagjöf, meðmæli, lýsingar og myndir af viðbótum í notkun hjálpa þér að finna réttu viðbótina fyrir þig.
Thunderbird býður upp á stuðning fyrir persónuvernd og vernd gegn myndum. Til að tryggja persónuvernd, getur Thunderbird stoppað sjálfkrafa fjarlægar myndir í tölvupósti.
Thunderbird verndar þig frá fölsuðum pósti sem reynir að plata notendur í að láta af hendi persónuleg gögn og leynilegar upplýsingar, með því að gefa til kynna hvort pósturinn sé hugsanlega frá svikara. Einnig lætur Thunderbird vita þegar þú smellir á tengil sem fer á annað vefsvæði en það sem er í póstinum.
Thunderbird athugar reglulega hvort þú ert að keyra nýjustu útgáfuna, og lætur þig vita ef öryggisuppfærsla er tiltæk. Þessar öryggisuppfærslur eru venjulega mjög litlar (oftast 200KB - 700KB), þannig að öryggisuppfærsla er fljót að niðurhalast og uppsetningin er hröð. Sjálfvirkar uppfærslur eru til fyrir Thunderbird á Windows, macOS, og Linux á yfir 40 mismunandi tungumálum.
Hið vinsæla Thunderbird ruslpóstsíutól hefur verið uppfært til að vera skrefinu framar en ruslpósturinn. Hver móttekinn póstur fer í gegnum ruslpóstsíu Thunderbird sem byggir á allra nýjustu tækni. Í hvert skipti sem þú merkir póst sem ruslpóst, "lærir" Thunderbird og endurbætir síuna þannig að þú getur notað þinn tíma frekar í að lesa póst sem skiptir máli. Thunderbird getur einnig notað þá ruslpóstsíu sem tölvupóstþjónustuaðilinn býður upp á til að halda ruslpóstinum frá innhólfinu.
Grunnur Thunderbird er frjáls hugbúnaður sem er þróaður af þúsundum áhugasamra, reyndra, þróunaraðila og öryggissérfræðinga út um allan heim. Okkar frjálsa og virka samfélag sérfræðinga hjálpar við að tryggja að hugbúnaðurinn okkar sé öruggur og uppfærður mjög fljótt, en leyfir okkur samt sem áður að nota það besta af öryggis- og þróunarforritum frá utanaðkomandi aðilum til að styrkja heildaröryggið.